ALPHAVIKINGS™
Kynntu þér Ásgeir
Ég heiti Ásgeir Jóhannesson og stofnaði ALPHAVIKINGS™. Ég legg áherslu á skýrt æfingaskipulag, reglulegar æfingar og eftirfylgni sem passar við daglegt líf. Í þjálfuninni förum við yfir markmiðin þín og finnum fyrirkomulag sem hentar þér.
Ég lauk námi í einkaþjálfun við Einkaþjálfaraskóla World Class árið 2023. Í þjálfun minni legg ég áherslu á styrk, góða framkvæmd æfinga og raunhæfar framfarir.
Þjálfun sem passar við daglegt líf
Við byrjum á markmiðunum þínum og því sem þú getur sinnt í daglegu lífi. Þú færð skýrt skipulag, leiðsögn í æfingum og reglulega eftirfylgni.
Þjálfun með mér fer aðallega fram í World Class á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði. Þú getur einnig valið fjarþjálfun í appi. MEAL CHECK™ er sjálfstæð þjónusta fyrir þá sem vilja betri yfirsýn yfir matarvenjur.
Bóka kynningarsamtalLaust pláss og æfingatímar eru staðfest áður en þú greiðir. Aðild að World Class er greidd sérstaklega.
